Yin-Yang
HEIM


Arnbjörg Linda
Nálastungunám
Námskeið
Greinar
Stofan
Póstur


 


Velkomin á fræðsluvefinn um Kínverskar lækningar

Áhugi fólks á lækningum sem stundum eru nefndar „óhefðbundnar“ hefur farið ört vaxandi á undanförnum árum. Fjöldamargir Íslendingar hafa nýtt sér þennan lærdóm aldanna með góðum árangri gegn ýmsum kvillum og sjúkdómum.

Bamboo

Þegar fólk kemur með heilsufarsleg vandamál til sérfræðings í kínverskum lækningum eru það helst þrjú atriði sem sjúkdómsgreiningin byggist á; þ.e. skýrslutöku, skoðun og hlustun.

Stofan

Skýrslutaka: upplýsingar um sjúkrasögu, sjúkdómseinkenni og lifnaðarhætti manneskjunnar.

Skoðun: almenn skoðun á sjúklingi, þar með talið skoðun á líkams- og andlitstjáningu; húðlit og húðgerð; skoðun á almennu útliti, lagi, lit og öðrum einkennum á tungu þ.m.t. skán á tungunni, athugun á líkamslykt þ.e. hvort vottur af óeðlilegri eða óvenjulegri lykt sé af líkama sjúklings.

Hlustun: á eiginleika máls sjúklings þ.m.t. hvernig manneskjan bregst við spurningum, hversu hratt eða hægt hún talar, og hljómbrigði raddarinnar; á öndun og á hljóð sjúkdóma, eins og hósta, hávaða í innyflum o.s.frv, auk hlustunar á púlsana.

 

Grunnnám í kínverskriNálastungunám læknisfræði og
nálastungu
lækningum

Námið er ætlað fólki sem hefur grunnþekkingu í líffæra- og sjúkdómafræði. Kennslan fer fram á Stofu hinna fjögurra árstíða, Skólavörðustíg 16, 101 Reykjavík >


ÍSLENSKAR LÆKNINGAJURTIR

Íslenskar lækningajurtirBókin Íslenskar lækningajurtir, sem birtist fyrst fyrir um 20 árum, kemur nú útí nýrri mynd, rækilega uppfærð og endurskoðuð. Hér er gerð grein fyrir lækningamætti íslenskra jurta og úrvali erlendra lækningajurta sem nálgast má hér á landi. Leiðbeint er um notkun fleirra og m.a. kennt að gera veigar, bakstra og smyrsl. Þá eru hinum fornu fræðum kínverskra jurtalækninga gerð skil og þau tengd við jurtirnar sem fjallað er um í bókinni. >